Entry: Fundur mið 12 sept Sunday, September 09, 2007



Góðan daginn
 
Við vonum að allir hafi skemmt sér vel á bjórkveldinu og nýnemadögum Stúdentaráðs.
 
Á miðvikudagskveldið verður fyrsti haustfundur Homo veturinn 2007-2008. Þeir sem hafa áhuga að starfa með félaginu í vetur eða bara vita um hvað félagið snýst þá endilega veriði velkomin. Það vantar enn að fylla í stöður í félaginu:
- meðstjórnendur
- árshátíðarnefnd
- skorarfulltrúa fyrir 2. ár
 
Einnig ef þið hafið áhuga á að koma einhverju á framfæri eða viljið gera þennan starfsvetur þá endilega komiði á fundinn.
 
Fundurinn er á miðvikudaginn 12 september í stofu 201 í Odda kl 20:00
 
Við vonum að sjá sem flesta 1. árs nema því þetta er mjög skemmtilegt og gott tækifæri til að kynnast fólki í sama námi og þú.

Einnig ef þú ert ekki að fá meilin frá okkur endilega senda okkur l´linu á homo@hi.is og við bætum þér einn á póstlistann. En þá þarftu líka að tala við nemendaskrá um að bæta þér inn á mannfræðipóstlistann.
 
Kv. Homo

   0 comments

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments